Iceland change
 

Dirk U. Hindrichs

 
 
“Fyrirtæki skapa verðmæti. En ættum við að meta þau eingöngu út frá efnahagslegu gildi? Er þetta ekki frekar spurning um að líta ekki einungis á markmið daglegra viðskipta heldur grípa til aðgerða gegn hinum mikla vanda dagsins í dag. Eða með öðrum orðum: Það er kominn tími til að við sköpum verðmæti til framtíðar litið!

Af því að loftslagsbreytingar hafa sífellt meiri áhrif á umhverfi okkar. Þær eru nú þegar ógn við búsvæði fjölmarga dýrategunda og þær hafa einnig sífellt merkjanlegri afleiðingar fyrir mankynið. Enginn vafi leikur á því að brýnasta verkefnið, sem við stöndum frammi fyrir, er að vernda bláu plánetuna og kynslóðum dagsins í dag og kynslóðum framtíðarinnar ber skylda til að gera það. Hver og einn ætti að byrja að gera eitthvað. Núna!

Schüco og samstarfsaðilar þess hafa tekið þessa ábyrgð. Með því að grípa til aðgerða núna. Saman erum við að búa til orkugefandi byggingar. Við erum að þróa nýjar lausnir til að mynda hreina sólarorku. Og leggjum okkar lóð á vogarskálina með sjálfbærum verðmætum til að tryggja framtíð plánetunnar okkar sem á sér enga líka. Vertu hluti af þessu.”
Dirk U. Hindrichs
Forstjóri og framkvæmdastjóri Schüco International KG

Schüco – Græn tækni fyrir bláu plánetuna
Hrein orka frá sólinni og fyrir tilstuðlan glugga.

Schüco er leiðandi á heimsvísu hvað varðar orkugefandi byggingar. Fyrirtækið er drifið áfram af getu sinni á svið sólar- og útveggjatækni og vilja til að taka ábyrgð á bláu plánetunni.

Hjá Schüco, sem stofnað var árið 1951, vinna í dag 5.000 starfsmenn og fyrirtækið á í samstarfi við 12.000 fyrirtæki í meira en 78 löndum. Velta fyrirtækisins, sem er með höfuðstöðvar í Bielefeld í Þýskalandi, var 2,38 milljarðar evra árið 2010.

Fyrirtæki,Schüco,Um Schüco

Ný tækni og öflugt net samstarfsaðila

Schüco reiðir ekki einungis fram fyrsta flokks glugga- og útveggjatækni og áhrifaríkar sólarlausnir - sólarhita og sólarorku. Það er einnig mikilvægur tengiliður. Fyrir arkitekta, framleiðendur, uppsetningaraðila sólarkerfa, verktaka, fjárfesta og viðskiptavini. Markmiðið er að veita sérsniðnar lausnir fyrir alla geira markaðarins – frá einkaheimilum til atvinnu- og iðnaðarverkefna. Með miklu úrvali vara úr hágæðaefnum. Með kerfum sem uppfylla ströngustu kröfur hvað varðar orkunýtingu, öryggi, þægindi og hönnun. Og sem uppfylla hæstu gæðastaðla.

Ábyrgð á heimsvísu

En Schüco er meira en þetta. Til viðbótar við sérfræðiþekkingu á sviði tækni er eitt atriði sem aðgreinir lausnir Schüco frá öllum öðrum: vilji til að bera ábyrgð. Fyrirtækið leitast við að finna lausnir við mest aðkallandi vanda okkar tíma – síauknum loftslagsbreytingum og minnkandi orkubirgðum. Með verkefni fyrirtækisins “Energy3: Saving Energy - Generating Energy - Networking Energy” hefur Schüco komið fram með nýja hugmynd á sviði orku. Varmaeinangrun, byggingarsjálfvirkni og öflugar sólarorkulausnir hjálpa til við að minnka orkunotkun bygginga og hjálpa á sama tíma til við að mynda hreina orku.