Sólarhiti og sólarorka: Tvær lausnir við aðkallandi vanda.
Jarðefnaeldsneyti er að verða sjaldgæfara og veldur álagi á loftslagið. Orka frá sólinni er óþrjótandi, hrein og hjálpar til við að minnka losun koltvísýrings.
Lausnir frá Schüco nýta þetta, stærsta orkugjafa sem mankynið hefur völ á. Sólarvarmi og hitadælur: endurnýjandi orkukerfi fyrir heitt vatn og upphitun á heimilum. PV-uppsetningar (‘photovoltaic’) sem nota orku sólarinnar til að mynda rafmagn á hreinan og hagkvæman hátt.
Hugmyndin að baki Schüco sólarorkukerfunum er að gera hagkvæmt, en umfram allt hreint, orkuver úr hverri byggingu. Mynda meira sjálfstæði gagnvart orkumarkaðnum. Og leggja fram umtalsverðan skerf til sjálfbærrar loftslagsverndar.
Í stuttu máli sagt býður Schüco með nýjum sólarorkukerfum upp á lausnir sem sameina tæknilega sérfræðiþekkingu og ábyrgðartilfinningu. Hvort sem um er að ræða einkaheimili, atvinnu- og iðnaðarverkefni eða uppsetningar á jörðu. Fyrirtækið uppfyllir hæstu gæðastaðla. Og hefur þá sannfæringu að loftslagsvernd þurfi ekki að fara fram á kostnað árangurs á viðskiptasviðinu.
