Schüco – verkefni fyrirtækisins
Schüco: Þar sem sýnir verða að veruleika.
Hvert fyrirtæki hefur sína sýn. Sýn Schüco er: að vernda auðlindir jarðarinnar og vernda þar með bláu plánetuna. Þessari sýn er lýst með "Energy3: Saving Energy - Generating Energy - Networking Energy”: einkunnarorð sem eiga við um allar Schüco-vörur.
Schüco býr yfir 60 ára reynslu sem fyrirtækið nýtir til að ná markmiðinu um örugga framtíð. Með nýjum lausnum á sviði glugga, útveggja og sólarvara. Og með því að leggja áherslu á viðskiptavini er fyrirtækið orðið að best þekkta fyrirtækinu og einnig áreiðanlegasta vörumerkinu í byggingariðnaði.
Þetta þýðir einnig að Schüco er viðurkennt vörumerki. Sjálfsímynd sem gerir ýtrustu kröfur um eigin vinnu fyrirtækisins. Í reynd þýðir þetta að reiða fram orkugefandi lausnir sem fylgir vel skilgreindur ávinningur: orka, öryggi, þægindi og hönnun. Þetta þýðir að lýsa yfir trú á gildin yfirburðir, nýjungar, samstarf og ábyrgð en þau eru höfð að leiðarljósi á hverjum degi sem hluti af grundvallarviðhorfum fyrirtækisins.
Mesti ávinningur fyrir fyrirtæki: uppfylla gildi.
Yfirburðir. Að vera bara góð er ekki nóg fyrir Schüco. Gerð er krafa um nákvæmni og fullkomnun. Í einu orði: yfirburði. Á öllum sviðum starfseminnar. Í öllum verkefnum í daglegum rekstri. Gildin verða að veruleika.
Nýjungar. Schüco er markaðsleiðandi. En það þýðir einnig að fyrirtækið vinnur stöðugt að auknum nýjungum. Til að bjóða upp á bestu lausnirnar. Til að vera alltaf einu skrefi á undan öðrum fyrirtækjum á markaðnum.
Samstarf. Schüco er alþjóðlegt samstarfsnet sem samanstendur af 12.000 arkitektum, málmframleiðendum, uppsetningaraðilum sólarkerfa, fjárfestum og viðskiptavinum. Aðilar sem bundnir eru saman af samstarfi. Þar með auka þeir sameiginlegan árangur. Og auka traust á Schüco og samstarfsneti þess.
Ábyrgð. Schüco telur að þar sem fyrirtækið er markaðsleiðandi eigi það einnig að bera ábyrgð. Gagnvart öllum samstarfsaðilunum. Gagnvart komandi kynslóðum. Og gagnvart bláu plánetunni okkar.
